Innsendar greinar


18.3 2010 - Rita ummæli »

Rammaáætlun – hreppar bornir saman við meginlönd

Í umræðum um orkumál undanfarna mánuði hafa iðnaðarráðherra og orkumálastjóri ítrekað bent á að niðurstöður rammaáætlunar væru alveg á næsta leyti, líkt og þá myndi jörð rísa iðjagræn úr ægi og hægt yrði að byrja upp á nýtt með hreint borð. Með rammaáætlun var frá upphafi ætlunin að skapa sátt um vernd og nýtingu orkulinda þjóðarinnar en ávallt hefur legið ljóst fyrir að með rammaáætlun yrðu ekki til neinar nýjar orkulindir og harla ólíklegt að hún myndi opna leiðir inn á friðuð svæði. Í síðustu viku rann stóra upp … meira



18.3 2010 - 2 ummæli »

Ódæðismennirnir

Alltaf er léttir þegar ódæðismenn finnast. Íslendingar eru svo lánsamir að hafa fundið sína raunverulegu höfuðfjendur sem valdið hafa því að allt er hér í kaldakoli. Ódæðismennirnir eru listamenn, þær afætur. Það hefur tekið menn talsverðan tíma að átta sig á óvinum lands og þjóðar - en nú eru þeir sem sagt fundnir. Væntanlega má nú senn halda næstu þjóðaratkvæðagreiðslu, - nú um afnám listamannalauna. Alveg ábyggilega myndi fólk hópast á kjörstað til að segja nei og síðan fara heim til að horfa á mynd í sjónvarpinu eða líta í … meira



17.3 2010 - 4 ummæli »

Hvað felst í „fyrningarleið“?

Þegar fjallað er um mikilvæg hagsmunamál þjóðarheildarinnar, er mikilvægt að fólk geri sér fulla grein fyrir hvað orð þeirra og gerðir þýða fyrir þjóðfélagið. Þetta er sagt vegna þess að ég dreg í efa að hugmyndasmiðir Samfylkingarinnar hafi gert sér grein fyrir hvað felist í hinni svokölluðu “fyrningarleið” þeirra. Hugtakið “fyrning”, byggir á niðurfærslu eða úreldingu skráðrar og bókfærðrar eignarstöðu, þess sem fyrna á. Í ljósi þess að aflaheimildum hefur alla tíð verið úthlutað fyrir eitt ár í senn, og að í 1. gr. … meira



14.3 2010 - 16 ummæli »

Að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu

Eins og margir aðrir landmenn horfði ég á Silfur Egils sunnudaginn 7. mars eftir að hafa greitt atkvæði um tvíhliða utanríkissamninga við Hollendinga og Breta. Það var í raun ómögulegt að kjósa um þá valkosti, sem voru í boði, þar sem nýir samingar voru og eru væntanlega í sjónmáli. Í þáttinn voru mættir forystumenn allra flokka og mátti sjá að Jóhanna forsætisráðherra og Steingrímur fjármálaráðherra voru örþreytt og að niðurlotum komin. Annað var upp á teningnum hjá fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna, þeim Bjarna og Sigmundi, sem leika … meira



14.3 2010 - 5 ummæli »

Hjáleiga og höfuðból

Í kjölfar þess að mörgu góðu fólki var sagt upp á Morgunblaðinu hefur nú Ólafur Stephensen orðið ritstjóri Fréttablaðsins, en hann er einn úr hópi hins brottrekna Morgunblaðsstarfsfólks. Kannski er hann eini ritstjórinn sem rekinn hefur verið af Morgunblaðinu, ég veit allténd ekki um annað slíkt tilvik. En þrátt fyrir þessa lífsreynslu Ólafs ber hann greinilega ekki kala í brjósti til síns gamla vinnustaðar og þeirra sem þar halda um valdatauma. Það sýnir hvernig hann hyggst stjórna Fréttablaðinu. Strax er farið að sjást hvar hann hlaut sína er … meira



8.3 2010 - 2 ummæli »

Vond vígstaða

Nei við Icesavesamningnum - og hvað svo? Eðlilegt sýnist að stjórnarandstaða komi með vantrauststillögu á ríkisstjórnina í kjölfar þessarar niðurstöðu. Verði slík tillaga felld situr stjórnin áfram. Mjög líklega hefur hún þegar tryggt sér þingmeirihluta til að standa af sér vantraustið. En eftir sem áður mun ganga illa að semja um Icesaveskuldir með núverandi stjórnarandstöðu og forsetanum. Áfram yrði karpað til að reyna að fella stjórnina og komast hjá því að sannleikur um ýmsa sem komu að bankahruninu komi í ljós. Í framhaldi af því á … meira



3.3 2010 - 11 ummæli »

Mikilvægi fábjána

Talið er að fábjánar séu eitt mikilvægasta einkenni nútíma samfélaga, þeirra samfélaga sem vilja skara fram úr. Því fleiri því betra. Þær þjóðir sem vilja leiða í vísindum, tækni og uppfinningum verða að eiga marga fábjána og segja má að fábjánar séu mælikvarði á mannauð hverrar þjóðar. Fátt hefur komið Íslandi verr á síðustu misserum en sjálft fábjánaleysið. Á sama tíma státa ríki eins og Indland af tæplega 29 milljónum fábjána og Kína af 32,5 milljónum bjána. Í þessu felst ósanngirni búsetuskipulagsins í er af talið eins og … meira



3.3 2010 - 1 ummæli »

Þegar dýrðarmenn verða til

Það var býsan skondin saga, sem Guðrún, vinkona mín, Guðlaugsdóttir sagði frá störfum sínum fyrir aldraða. Gamla dömur gengu hneykslaðar út, þegar rætt var um framlag Hitlers til mannkynssögunnar, sem sannarlega var ekki gott. Það er í rauninni óútskýranlegt, hvað sumt fólk, mannkynsfrelsarar. poppgoð eða jafnvel örgustu morðingjar geta búið yfir mikilli útgeislun og valdi yfir hugum manna. Það er einnig óútskýranlegt, hversu djúpstæð tryggð getur skotið rótum í hugskoti manna gagnvart goðum sínum, hvort sem þau eru trúarleiðtogar, poppgoð - … meira



3.3 2010 - 4 ummæli »

Vonbrigði aldarinnar?

Vonbrigði aldarinnar sýnast blasa við ýmsum eftir að þjóðaratkvæðagreiðslan hefur farið fram, ef af henni verður. Þeir sem vilja ganga frá þessu máli verða auðvitað vonsviknir ef samningurinn verður felldur sem lítur út fyrir. Í honum eru endurskoðunarákvæði sem sýnast geta tekið við þeim breytingum sem nýjustu samingsdrög innihalda. Mun meiri verða þó vonbrigði þeirra sem halda að Íslendingar þurfi ekki að borga Icesaveskuldir falli samningurinn. Það mun ekki ganga eftir, - við þurfum að borga, óhætt er um það. Enn aðrir gera um … meira



23.2 2010 - 9 ummæli »

Þjóðarauðlindir í þágu almennings

Ég var viðstödd fund áhugamanna um sjávarútvegsmál á Vitanum í Sandgerði í gærkvöldi (22.02.). Á fundinum stóð til að stofna félag fólks sem beitti sér fyrir því að halda auðlindunum í „raunverulegri“ þjóðareign, þ.e. þjóðareign í þágu almennings, berjast fyrir afnámi núverandi sægreifakerfis og krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu um grundvöll fiskveiðistjórnarkerfisins (og væntalega annarra sameiginlegra auðlynda þjóðarinnar, sbr. orkuauðlindanna) þar sem þjóðin endurheimtir nýtingarrétt sinn og hlunnindi af auðlindinni og komið … meira



Sendu á Lúguna

Lúgan er vettvangur almennrar þjóðfélagsumræðu á Eyjunni. Þar gefst lesendum okkar kostur á að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar og landsins gagn og nauðsynjar.

Netfangið er: lugan@eyjan.is

Fullt nafn, starfsheiti, netfang og símanúmer höfundar verður að fylgja.

Ef mynd af höfundi fylgir, verður hún að vera 120 x 120 pixlar að stærð, sbr:
Allar greinar eru birtar undir fullu nafni höfundar. Málfar og stafsetning er á ábyrgð höfunda.

Lesendum gefst kostur á að birta athugasemdir við hverja grein. Eyjan hvetur eindregið til þess að þær séu settar fram undir fullu nafni.

Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar